Andrésar
myndir :)
09.03.2008 19:07:09 / fuck

eitthvað..

Halló :)
já ég fór í afmælisveislu í gær, það var bara rosa fínt :) hitti árdísi og örnu þar :) spjölluðum vel og lengi ;)
Annars er svo sem ekkert að frétta..
sakna aron míns svo rosalega mikið:!: :cry: ekkert smá erfitt að vera svona án hans ég bara get ekki beðið eftir því að fá hann heim! hlakka svo til! shit..
annars er ég eitthvað voða þung þessa dagan.. en svona er þetta bara. það líður hjá á endanum :)  bara svo ótrúlega leiðinlegt að vera alltaf svona án hans :cry:
hef annars ekkert að segja nema ég elska þig aron minn koss

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 14:32:03 / fuck

söknuður

halló
já það er svo sem ekkert að frétta þannig séð.. langaði bara eitthvað að skrifa hérna

ástin mín er bara ennþá á sjónum! ég er ekki alveg að meika að vera svona án hans í augnablikinu :cry: en það þýðir víst ekkert að væla út af því.. það er bara svo leiðinlegt að vera alltaf svona ein :cry: mér hlakkar ekkert smá til að fá hann heim:!: :!:

við eigum afmæli á morgun :D trúlofunarafmæli :D þá erum við búin að vera trúlofuð í 3 ár ;) en við getum náttúrlega ekkert haldið upp á það, þar sem að hann er ekki heima :( svo það verður bara gert eitthvað skemmtilegt þegar að hann kemur heim :D ;) Gerum líka bara eitthvað ótrúlega skemmtilegt úti :D

Svo er maður víst að fara til hjartalæknis á morgun :$ vildi að Aron minn gæti farið með mér, en svo er ekki.. verður fínt að ljúka þessu af :)

Annars er náttúrlega alltaf nóg að læra, það er ekki það.. mætti alveg hafa meiri þolinmæði/einbeitingu í að vera að læra..

ég er mikið að spá í að fá mér nýtt tattoo, langar svolítið að fá mér nýtt :) en það kostar bara svolítið mikið að fá sér tattoo hérna á íslandi svo kannski að maður fái sér bara eitt úti ;)

Hef ekki meira að segja í bili..
Elska þig mest af öllu Aron minn :* koss :*
Sakna þín alltof mikið :cry:

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 14:12:26 / fuck

föstudagur

halló, halló
ég fékk ástina mína heim á þriðjud. en hann er farinn aftur á sjóinn :cry: en svona er þetta bara :( það var ekkert smá nice að fá hann heim!! elska að kúra og svona ;) hann er nú ekki búinn að vera mikið heima á þessu ári! þess vegna verður æði að fara með honum út! ég bara get ekki beðið eftir að fá hann heim :*

En það eru fjarnemadagar þessa dagana upp í háskóla :) sem er bara fínt :D þarf samt að mæta 8 í fyrramálið! á laugardegi.. :lol:

svo er ég loksins komin með tíma hjá hjartalækni, fæ þá vonandi útskýringu á hjartverkinum sem að ég hef verið að fá..

Annars er nú ekki mikið að frétta hérna hjá mér... hef bara eins og vanalega nóg að læra svo kannski maður fari að sinna því núna.

Elska þig mest Aron minn :* Miss you :cry:


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 18:52:00 / fuck

rósir

halló halló
Ég hélt upp á afmælið í gær :) bauð Rut, Söndru og Sveindísi í mat hingað og Sandra kom svo með afmælisköku í eftirrétt, þetta var rosalega gott ;) vorum geðveikt sætar og fínar ;) hehe svo kom Jenný seinna um kvöldið :D þetta var rosalega skemmtilegt kvöld og mikið hlegið!  Fórum svo allar á kaffi ak.. og dönsuðum af okkur rassinn :lol: 

En það besta og æðislegasta af öllu var að ég fékk sendan rósavönd áðan frá Aroni mínum :* ekkkert smá æðislegt :* kom mér líka geðveikt á óvart :D Árdís kom með hann áðan ;) Elska þig Aron minn :* Sakna þín geðveikt mikið :cry:

Held samt að ég ætli að fara að læra aðeins! reyna að vera dugleg ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 11:38:45 / fuck

Afmæli

hellú
já þá á maður víst afmæli í dag ;) orðin 20 ára. ég bíð samt ennþá eftir því aði einhver komi með köku til mín, þar sem að Aron minn er ekki heima þá ætlast ég til þess að einhver annar gefi mér köku :D hehehe en já, ömurlegt að hafa hann ekki hérna hjá mér, sérstaklega núna þegar að maður á svona ,,stór" afmæli... en það verður bara haldið vel uppá það þegar að hann kemur :D En hann gaf mér æðislega afmælisgjöf ;) ég fæ utanlandsferð :* elska þig Aron minn :*
Maður er búin að vera að fá helling af smsum og skilaboðum á myspace og msn og ég vil bara þakka öllum fyrir þau :*
Annars er ekkert merkilegt búið að gerast.. er bara alltaf að læra eins og venjulega :$ nema að ég er búin að vera þó nokkuð dugleg við að þrífa bílinn undanfarið ;) heheh stendur hérna glansandi fínn í stæðinu sínu
en já ég ætla að fara að læra og finna einhvern sem vill gefa mér köku :D

elska þig mest Aron minn :* hlakka geðveikt til að fá þig heim!!

Afmælisbarnið kveður ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 23:19:56 / fuck

valentínusardagur

halló
já það er víst valentínusardagur í dag.. en ég hef ekki ástina mína hérna svo ég er bara ein :(
ég fékk samt ástina mína heim í nokkra daga!! ;) geðveikt að fá hann heim!! elska það! nutum þess í botn ;) eintómt kúr og svoleiðis ;) var ekkert smá gott að fá hann, hata að vera alltaf svona ein...

Annars er bara búið að vera nóg að gera hjá mér.. endalaust að gera í þessum skóla. svo var ég að hjálpa tinnu sys aðeins í gær við verkefnið hennar :)

Svo ætla gömlu að koma á morgun, það verður fínt að fá þau aðeins, fá mömmu mat :D nammi namm

það er bara vika í afmælið mitt í dag :D

annars er nú ekkert merkilegt að frétta..
Elska þig mest af öllu Aron minn :* sakna þín geðveikt mikið!! ekkert smá mikið :cry:


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 01:20:55 / fuck

laugardagur

já halló :)

ég er í einhverju stuði til þess að blogga.. veit samt ekki um hvað.. heheh

Það hefur nú ekki mikið gerst hérna síðustu daga.. er bara búin að vera að hlusta á fyrirlestra og reyna að vera dugleg að læra :D það gengur svona ágætlega.. mætti hafa smá meiri einbeitingu :D  Er bara mikið að hugsa um eitthvað annað en lærdóm þessa dagana :D Hlakkar svo mikið til að fara út.. verð samt að róa mig aðeins, þarf að einbeita mér að lærdómnum, bíður mín nóg af lesefni þar :(

Annars var ég að vona að kallinn minn væri að koma til mín í nokkra daga en ég veit ekkert ennþá.. :( ömurlegt maður veit aldrei neitt og ekki þeir heldur, þeim er aldrei sagt að þeir séu að fara í land.. eða hvenær þeir fari nákvæmlega út.. en það þýðir ekkert að pirra sig á því.

ég skrapp aðeins með rut út í dag :) fórum á rúntinn og svona, voða gott að fara aðeins út.. er bara búin að vera heima undanfarna daga að reyna að læra.. mæli sko ekki með því fyrir þá sem eru að fara að byrja í háskóla að byrja háskólanámið í fjarnámi!! það er geðveikt erfitt ef að maður hefur ekki verið í háskóla áður..

Svo vonaði ég að bíllinn mundi koma í dag en það er náttúrlega svo KLIKKAÐ veður að það er ekki hægt að ferðast á milli :( hvað er málið sko.. alltaf brjálað veður.. um daginn snjóaði alveg óendanlega mikið!! ég er að segja ykkur það að ég notaði ekki bílinn í 3 daga.. þannig að ég ákvað á sunnudagskvöldið síðasta að moka hann upp! ég er að segja ykkur að ég þurfti að moka hann upp!! rétt svo sá í loftnetið og eitthvað í hliðarrúðuna.. alveg.. tók mig hálftíma að grafa hann upp með HÖNDUNUM :D hehe og ég er náttúrlega svo geggjaður driver að ég náði að losa hann án nokkurs erfiðis :D heheh :)

en já hef ekki meira að segja.. ætla að fara að láta utan um STÓRU sængina mína :D

Sakna þín Aron minn!!! elska þig mest af öllu :*KOSS:*


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 18:37:52 / fuck

31. jan 2008

halló halló

það er nú svo sem ekki margt að frétt en mig langaði að skrifa eitthvað hérna..

ég er búin að ná í útskriftarmyndirnar mínar og var mjög ánægð með þær, fékk þær samt ekki á diski.. fékk þær í svona almbúmi.

ég er bara búin að vera að læra undanfarna daga :) reyni að vera dugleg :)

það er nóg af afmælum á næstunni :) styttist óðum í afmælið mitt, þá verður kellan 20 :D  svo eigum við trúlofunarafmæli í mars (3 ár :D)og svo í apríl þá erum við búin að vera saman í 5 ár :D Mjög gaman að þessu :)

svo erum við að fara til útlanda í maí :) hlakkar ekkert smá til :D höfum svo gott af því að fara eitthvað tvö :D

það er ágætis snjókoma úti núna ekta veður :D ef að Aron væri hérna þá værum við pott þétt að fara út eða úti :D heheh elskum svona veður, kemur nóg af sköflum :) langar geðveikt að leggjast í snjóinn!! og horfa upp í himininn..heheh

Annars er bara nóg að gera í lærdómnum hjá mér!! þarf bara að fá meiri einbeitingu, ekkert smá erfitt að vera að byrja á svona námi í fjarnámi.. þar sem að maður hefur enga kennara nema á webct sem ég b.t.w. þoli ekki, það er alltaf eitthvað að þessu drasli... En maður reynir sitt besta bara :)

var að vonast til þess að ég mundi fá kallinn minn heim núna, fyrst að kvótinn er svo lítill, það virðist vera sem að þeir séu bara einir á sjónum, því að hinir eru að bíða eftir að loðnan hækki í verði... rosalega skrýtið að þeir séu ekki líka í landi á meðan beðið er eftir að hún hækki... þannig að ég veit ekkert hvenær hann kemur :cry:  :cry:

Það er alveg hundleiðinlegt að vera alltaf svona án hans!

man ekki meira í bili...

Sakna þín Aron minn! Elska þig :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 01:54:56 / fuck

kúrudagar

hellú

ég er bara byrjuð á fullu í háskólanum :) of snemmt að segja hvernig það gengur.

Svo fékk ég kallinn minn til mín á fimmtudaginn!!! :D shit hvað það var gott :) eintómt kúr og nammi át :D alveg hreint elska svoleiðis daga, þar sem að maður gerir ekki neitt nema að kúra, horfa á eitthvað, borða nammi og svona ;) ooo ELSKA þessa daga :*

Hann átti svo afmæli á meðan hann var í landi og hann fékk hjartalaga súkkulaðiköku :D og svo Síma og bol frá mér ;) Til hamingju með afmælið ástin mín :*

Svo fórum við aðeins út á lau, ég fór aðeins með Rut til Söndru og þar voru Sveindís og Jenný og við fórum í actonary.. og ég alveg hreint brilleraði í þessu.. að leika sko hehehhe :D Sumir urðu þó svolítið tapsárir (Sandra) en það gleymdist fljótt þegar að við fórum á Kaffi Ak. en ég stoppaði þar stutt og fór bara snemma heim með kallinum mínum ;*

Er að fara að ná í útskriftarmyndirnar á morgun :D

En ég er víst orðin ein aftur í kotinu!! :'( hata þetta.. er alltaf að kveðja hann... :'(

Elska þig Aron minn :* Sakna þín geðveikt mikið!! :'(

En annars man ég ekki eftir meiru...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 20:55:30 / fuck

humm :D

halló :D

dagurinn í dag var frábær, ég er sem sagt komin til Þórshafnar, að hitta gömlu :)

En ég hitti kallinn minn í dag, hann var að landa á Þórshöfn og við fengum alla frívaktina hans til að vera saman :D ooo elskaði það að fá að eyða smá tíma með honum :*  Elska þig Aron minn ;*

En já ég kom hingað í gærkvöldi og ég hélt virkilega að það yrði mitt síðasta, ég var að keyra þarna á beina kaflanum fyrir neðan fjallgarðinn (Þórshafnar meginn) og það var víst svona hryllilega hált!! svo að ég keyrði bara á 70 og samt fór bíllinn að sikk sakka, ég sem sagt keyrði út í einn kanntinn í hinn og svo aftur hinu meginn og svo aftur hinu megin og svo einu sinni enn áður en að ég náði að rétt hann af!!! guð ég hélt virkilega að núna mundi ég bara rústa bílnum!! var næstum því alveg viss! þurfti að stoppa í smá stund og ná andanum eftir þetta... hehehe og svo gerðist þetta aftur hjá Syðri Brekkum 8| En ég komst heilu og höldnu heim :D

Svo frétti ég það í gær að ég kemst inn í háskólann á Akureyri :D alveg hreint ótrúlega ánægð með það :D er að fara í stjórnun og á að byrja í næstu viku

ég var bara að koma úr hesthúsinu núna :) var á hestbaki :) fór bar samt smá hring af því að það var svooo hryllilega kalt :) en pabbi er að temja á fullu núna og fór á bak á eina merinna okkar og hún datt einhvern veginn þannig að hann datt af og hún ofan á hann... og hann stóð bara á fætur eins og ekkert hefði gerst! ótrúlegur...

Annars er ég bara í mjög góðu skapi :D það var svo æðislegt að fá að hitta ástina mína í dag ;) bjargaði alveg öllu

ætla að heimsækja ömmu mína á morgun :D

Já og við óskum auðvitað Inga Þór og Monicu innilega til hamingju með litla prinsinn :*

Annar er ekki meira að frétta í bili :) jólablogg fyrir neðan þetta :)

Elska þig mest af öllu Aron minn ;* Sakna þín strax ótrúlega mikið!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 00:43:22 / fuck

árið 2008

jæja þá er árið 2007 búið og nýtt tekið við :D og við óskum öllum gleðilegs nýs árs og takk fyrir það gamla :)

ég er útskrifuð af félagsfræðibraut frá Verkmenntaskólanum á Akureyri :D :D mjög ánægð með það. Var bara ótrúlega sátt við einkanirnar mínar :) fékk 10 heimspeki var ekkert smá ánægð með það!! fékk auðvitað 10 í jóga líka... heheh

Svo var ég beðin um að halda útskriftarræðuna og var mikið stress í kringum það... fékk Tinnu systir til að hjálpa mér aðeins og ég held að þetta hafi nú bara tekist nokkuð vel hjá mér :) var samt stressuð en það virtist enginn taka eftir því þannig að kannski var ég bara ekki eins stressuð og ég hélt.. það voru samt ótrúlega margir í salnum :) góð æfing fyrir lögfræðina ;)

Var ekkert smá sátt við allt sem að ég fékk í útskriftargjöf og rosalega ánægð með veisluna, maturinn var æði :)

útskriftargjöf: fékk gjafabréf í Glerártorg, peninga, lampa, kertastjaka, hálsmen, armband, eyrnalokka, ilmvatn, gjafabréf í kringluna upp á 30 þús :D

svo komu jólin og fórum við hjúin til Þórshafnar til mömmu og pabba og vorum bara ótrúlega ánægð með allt sem að við fengum!! við fengum ekkert smá mikið!

ég fékk D&G úr, gjafabréf í smáralind upp á 20 þús, ilmvatn og armband úr Studio 6 frá Aroni!! fékk svoooo mikið frá honum, var ekkert smá sátt með allt!! svoleiðis dekrað við mann ;)

ég gaf honum nýjasta Ipodinn, Diesel úr og fm-sendi :D

Svo fengum við handryksugu, verkfæratösku, sængur, bækur, lampa, lóð ;) og bara margt fleira! Fengum alltof mikið

Svo var kallinn minn að fara á sjóinn!! :'( ömurlegt... finnst eins og hann sé alltaf að fara.. en það þýðir ekkert að kvarta undan því!!

Vildi samt geta haft hann hérna hjá mér.. finnst svo leiðinlegt að vera svona án hans..

Sakna þín ótrúlega mikið ástin mín :'(

Elska þig mest ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 21:21:41 / fuck

loksins blogg

:) ákvað að skella inn einu bloggi hérna :)

en ég er búin í prófum og gekk bara mjög vel í þeim :) fór svo heim í 10 daga og það var bara ágætt og kom svo inn á ak á laugardaginn 15 átti að fara í afmæli en eitt afmælisbarnið var búið að vera á flugvelli í Boston í tvo sólarhringa svo að því var aflýst... :( en fór í afmæliskaffi í staðinn ;)

Svo er bara útskriftin eftir tvo daga eða 20 des kl 4 :) hlakkar rosalega til, búin að gera allt nema að semja ræðuna sem að ég var beðin um að flytja... ætla að láta Tinnu systir aðeins hjálpa mér við hana :)

Hlakkar alveg rosalega til að sjá kallinn minn :) en hann er nú að fara að koma af sjónum ;) get ekki beðið :)

umm man ekki eftir meiru í bili... mikið stress í gangi :D

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 15:26:36 / fuck

prófin búin

halló :) núna eru prófin búin hjá mér, fór reyndar bara í eitt próf en það var alveg nóg, var nú frekar erfitt..

En annars náði ég fluginu heim til Þórshafnar í dag, sem að er bara fínt, þá þarf ég ekki að vera ein heima :( finnst ömurlegt að vera svona án Arons... :'( en það þýðir ekkert að kvarta undan því hann fer að koma vonandi.. allaveganna fyrir útskrift eða vonandi

 En já voðalítið í fréttum.. er bara að fara að útskrifast 20. des :)

Elska þig Aron minn ;* mest af öllu

Sakna þín alveg rosalega mikið :'(


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 22:17:18 / fuck

jólin að koma

hellú :)

Jæja þá styttist óðum í að jólin komi!! :)

Skólinn alveg að verða búinn, aðeins 4 kennsludagar eftir!! :) trúi þessu ekki... allt að klárast!! ég fer í eitt próf og það er 5 des kl 8 svo er ég komin í frí :)

Svo er bara útskriftin 20 des kl 4 ;) er orðin svooo spennt yfir þessu öllu saman, er eins og lítill krakki :) hehheheh bara gaman að því

annars bara allt ágætt að frétt hér hjá okkur.. vorum í jólagjafaleiðangri um daginn :)

svo er kallinn bara að fara á sjó fram að útskriftinni... væri skemmtilegra að hafa hann hérna allann tímann!!  En svona er þetta :)

er að hugsa um að fara heim 5 des eftir prófið ;) og vera þar í einhvern tíma eða allaveganna til 15 eða eitthvað svoleiðis :)

annars bara nóg að gera, er að vinna í miklum verkefnum núna og svo að fara í 2 próf og það sem fylgir þessu öllu... En síðan er þetta bara búið!!

jæja þá er ekki meira sem að ég man eftir í bili :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 19:55:51 / fuck

veit ekki...

æjjj ég veit aldrei hvað ég að skrifa þarna upp..

En það er bara allt gott að frétta af okkur ;)

Kallinn minn er kominn til landsins ;) alveg hreint elska það ;)

Það er bara búið að vera nóg að gera í skólanum, en það fer nú alveg að fara að róast, í svona viku og svo byrjar allt á fullu.. Svo fer ég í eina prófið mitt 5. des og vonandi mun það bara ganga allt vel :)

á föstudaginn fór ég aðeins heim til Rutar og við vorum bara að spjalla og svona ;) rosa gaman ;) við vorum nú reyndar búnar að hittast aðeins á miðvikudaginn eða eitthvað svoleiðis, ætluðum að læra en það fór nú ekki alveg eins og það átti að vera, spjölluðum svo mikið ;) það var bara gaman að því ;) við fórum nú reyndar líka aðeins á rúntinn á föstudaginn með Söndru og það var bara líka gaman, tíminn ekkert smá fljótur að líða ;)

ég elska þig mest af öllu Aron minn ;*

hlakkar alveg rosalega mikið til að fá þig heim ;* get varla beðið ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 24915